Í upphafi jólaföstu er ljúft að mæta með fjölskylduna á Miðbakkann í Reykjavík þegar ljósin verða tendruð á Hamborgartrénu.
Eftir seinni heimsstyrjöldina lögðu íslenskir sjómenn skipum sínum við bryggju í Hamborg og gáfu þurfandi fólki súpu á hafnarbakkanum. Þjóðverjar minnast þess með hlýju og við þökkum fyrir okkur með því að þiggja tréð, taka á móti jólasveinunum og ylja okkur yfir fiskisúpu.
Öll börn eru hvött til að taka fullorðna með!
Verið hjartanlega velkomin!


