Spánsk-íslenska viðskiptaráðið (SPIS), sendiráð Íslands í Madríd og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) stóðu sameiginlega að skipulagningu fræðsluferðar til Mallorca dagana 15. – 16. október síðastliðin, í samvinnu við ferðaþjónustuyfirvöld eyjanna, Viðskiptaráð Palma og ræðismann Íslands á Mallorca.
Ferðaþjónusta hefur um árabil verið helsti atvinnuvegur Mallorca, en á eyjunum búa nú tæplega ein milljón manns.
Á undanförnum árum hafa stjórnvöld unnið markvisst að breytingum í ferðaþjónustunni, meðal annars með því að fækka ódýrum gistiheimilum og beina kröftum sínum frekar að því að laða að ferðamenn sem verja meiri fjármunum á eyjunni.
Samhliða því hefur tekist vel að vinna með nærsamfélaginu, þannig að íbúar búi í sátt við ferðaþjónustuna og að hún komi ekki niður á daglegu lífi þeirra.
Ferðin gekk afar vel. Haldinn var morgunfundur hjá Viðskiptaráði Palma með stjórnendum í ferðaþjónustu eyjanna. Auk þess voru heimsótt vistvænt hótel, hótel- og veitingaskóli, saltverksmiðja á Mallorca og Sorpa þeirra eyjabúa, sem var eintaklega vel skipulögð.
Heimamönnum voru kynnt fjárfestingatækifæri á Íslandi í baðlónum og hótelum.


