Amerísk-íslenska viðskiptaráðið (AMIS) býður á viðburð föstudaginn 2. október kl. 17 til 19 í Arion banka. Tilefnið er heimsókn Tim Walz ríkisstjóra Minnesota í tengslum við fyrirhugaða viðskiptasendinefnd AMIS til Minneapolis (skráning í viðskiptasendinefnd) sem verður 13.–14. október.
Tim Walz ríkisstjóri Minnesota og varaforsetaefni Demókrataflokksins árið 2024 og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrum forsætisráðherra munu eiga samtal á sviði (fireside chat). Þeir munu ræða tengsl yfir Atlantshafið - viðskiptasamband, hagsmunatengsl og samstarf Bandaríkjanna og Íslands, ásamt mögulegum viðskiptatækifærum í Minnesota.
Vinsamlega skráið ykkur á viðburðinn hér.
📅 Hvenær: Föstudaginn 2. október nk. kl. 17:00 – 19:00
🕒 Dagskrá föstudagsins 2. október:
17:00 | Mæting og skráning gesta inn á fundinn
17:30 | Opnunarávarp: Hlynur Ólafsson býður gesti velkomna
17:40 | "Fireside Chat": Tim Walz og Bjarni Benediktsson
18:25 | Óformlegt spjall fyrir utan fundarsal
19:00 | Viðburði lýkur
📍 Hvar: Í fundarsal Arion banka, Borgartúni 19
Vinsamlega athugið að sætaframboð er takmarkað. Við hvetjum þig til að skrá þig sem fyrst með því að ýta á bláa hnappinn hér fyrir neðan - til að tryggja þér pláss.

