Viðskiptasendinefnd til Minneapolis október 2026

AMÍS og Íslandsstofa bjóða í viðskiptasendinefnd til Minneapolis dagana 13. og 14. október sem utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fer fyrir

Dagskráin* í ár er virkilega spennandi og verða m.a. heimsóknir í höfuðstöðvar þekktra fyrirtækja á borð við Best Buy, 3M, Polaris, General MillsUS Bancorp, Coloplast, NeckCare og DEED (Minnesota Department of Employment and Economic Development).

Þátttökugjald er 85.000 kr. fyrir félagsmenn AMÍS og 40.000 kr. fyrir maka. Innifalið í þátttökugjaldi er hádegisverður báða dagana og akstur sem tekur mið af dagskránni.

Þátttakendur bóka flug og gistingu eftir hentugleika, en dagskrá AMÍS hefst að morgni þriðjudagsins 13. október og lýkur að kvöldi miðvikudagsins 14. október.

Nánari upplýsingar um ferðina, gistingu og annað veitir Stella Stefánsdóttir (stella@chamber.is).

Vinsamlega skráðu þig í viðskiptasendinefndina hér: https://forms.gle/Mn8Uhmi7XCkShMNUA

*Drög að dagskrá eru með fyrirvara um breytingar.

Millilandaráðin

Millilandaráðin & The Bilateral Chambers

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

105 Reykjavík

Hafa samband / Contact

bilateral@chamber.is

+354 510 7100