Nú styttist í hinn eftirsóknarverða steikarkvöldverð Amerísk-Íslenska viðskiptaráðsins sem verður laugardaginn, 5. september á Hilton, Reykjavík Nordica.
Steikarkvöldverður AMÍS hefur verið haldinn árlega síðan árið 2014 og verið afar vinsæll á meðal fólks í viðskiptalífinu. Forsölu er lokið og tryggðu þínu fyrirtæki borð áður en það verður uppselt.
Kvöldið hefst með fordrykk í boði Ölgerðarinnar.
Matreiðslumeistarar Hilton bjóða upp á glæsilegan matseðil þar sem Nautalund með beikoncrumble, fondant kartöflum, gulrótarmauki, gljáðum gulrótum, sveppum og rauðvínsgljáa verða í aðalrétt.* Í forrétt verður humarsúpa með pikkluðum fennel, dillolíu og leturhumar, Í eftirrétt verður Tiramisu, mascarponekrem, kaffi, ladyfinger og kakó, súkkulaðimús og hindber, churros með súkkulaðisósu og crème Brûlée. Að sjálfsögðu er einnig í boði matseðill fyrir grænkera.
Kynnir kvöldsins verður Árni Helgason, lögmaður, rithöfundur og alþingismaður.
Eftir kvöldmat tekur við skemmtidagskrá með Herra Hnetusmjör, stuðhljómsveitinni Babies og Röggu Gísla sem munu halda uppi stemmningu fram eftir kvöldi. Að venju mun leynigestur mæta á svæðið.
Hilton sér um bókanir og innheimtu fyrir viðburðinn en sem fyrr verður einungis í boði að kaupa heil borð og ekki hægt að taka frá nema gegn staðfestingu. Vinsamlega bókið borð með því að senda tölvupóst til Sigrúnar Jónu Sigurðardóttur Norðdahl (sigrunjn@icehotels.is).
Nánari upplýsingar veitir Stella Stefánsdóttir hjá AMÍS (stella@chamber.is) og Sigrún Jóna Sigurðardóttir Norðdahl (sigrunjn@icehotels.is) hjá Hilton Reykjavík Nordica.
Hlökkum til að sjá ykkur,

