Fréttabréf frá formanni Fransk-íslenska viðskiptaráðsins

Í tilefni af opinberri heimsókn Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, var viðskiptasendinefnd á vegum MEDEF, Samtaka atvinnulífsins í Frakklandi, jafnframt með í för. Í sendinefndinni voru einnig fulltrúar frá Ardian France og Thalès Group.

Markmið heimsóknarinnar var að efla tengsl íslenskra og franskra fyrirtækja, skapa vettvang fyrir aukið samstarf og kynna þau tækifæri sem Ísland hefur upp á að bjóða. Sendinefndin hóf heimsókn sína hjá Verne Global þar sem Styrmir Hafliðason, forstjóri fyrirtækisins ásamt Mathias Burghardt, forstjóra Ardian France kynntu starfsemina og buðu gestum í leiðsögn um gagnaverið. Að því loknu heimsótti sendinefndin Íslandsstofu þar sem Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu kynnti markmið Íslandsstofu, Karl Guðmundsson, verkefnastjóri stórfjárfestinga hjá forsætisráðuneytinu, fór yfir fjárfestingar og helstu markaði og Óli Örn Eiríksson kynnti nýtt innviðafélag Göng&Brú. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, bauð í móttöku í Utanríkisráðuneytinu þar sem fulltrúar íslensks atvinnulífs og franska sendinefndin áttu kost að ræða samstarfstækifæri og efla tengsl sín.

Heimsókninni var síðan haldið áfram á Hellisheiði þar sem Edda Sif Pind Aradóttir, forstjóri Carbfix, Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá Orku náttúrunnar, kynntu verkefni á sviði orku og sjálfbærra lausn.

Á síðari degi heimsóknarinnar átti sendinefndin fund á Alþingi með þingmönnum úr ólíkum stjórnmálaflokkum þar sem farið var yfir stöðu og framtíðarhorfur Íslands og Frakklands. Einnig tók Kolbeinn Árnason, ráðuneytisstjóri í atvinnuvegaráðuneytinu, á móti gestunum.

Því næst tók Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífins vel á móti sendinefndinni. Málefni Frakklands og Íslands á sviði atvinnulífins voru rædd ásamt þeim tækifærum sem felast í áframhaldandi eflingu viðskiptatengsla. Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar og hugverkasviðs SI og Freyr Friðfinsson, viðskiptastjóri hjá SI ræddu einnig við sendinefndina. Heimsókninni lauk með kynningu í Bláa lóninu þar sem Helga Árnadóttir sagði frá starfsemi fyrirtækisins, uppbyggingu þess og framtíðarsýn.

Heimsókn frönsku sendinefndarinnar tókst afar vel og undirstrikar þann vaxandi áhuga sem er á samstarfi milli Íslands og Frakklands. Slíkt samstarf og samskipti eru mikilvægur grunnur að áframhaldandi uppbyggingu viðskiptatengsla milli landa. Fransk-íslenska viðskiptaráðið þakkar öllum þeim fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum sem tóku þátt að gera heimsóknina bæði árangursríka og eftirminnilega.

Berglind Guðmundsdóttir,

Formaður Fransk-íslenska viðskiptaráðsins

Millilandaráðin

Millilandaráðin & The Bilateral Chambers

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

105 Reykjavík

Hafa samband / Contact

bilateral@chamber.is

+354 510 7100