Viðskiptasendinefnd með Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra til Rómar 5-7. nóvember 2026

Ítalía er sjötta stærsta hagkerfi heims og þriðja stærsta í Evrópu. Ítalska hagkerfið einkennist af sterkum hefðum í framleiðslu, hönnun og matvælaiðnaði, en er jafnframt að takast á við tækifæri og áskoranir sem fylgja hraðri tæknivæðingu og auknum samkeppnisþrýstingi á alþjóðlegum mörkuðum. Rótgróin fjölskyldufyrirtæki eru að innleiða nýjar lausnir og aðferðir, nýsköpunarfyrirtækjum fjölgar og hið opinbera leggur aukna áherslu á stafrænar umbreytingar.
Í viðskiptaferðinni gefst einstakt tækifæri til að kynnast þessum mikilvæga markaði sem telur um 60 milljónir neytenda. Ítalía er ein af stærstu neytendamörkuðum Evrópu og hefur sögulega verið mikilvæg
Lögð verður sérstök áhersla á nýsköpun, tækni, efnahag og þær greinar þar sem samstarf Íslands og Ítalíu getur þróast frekar.

 

Dagskráin er unnin i samstarfi við Sendirráð Íslands i Róm og Íslandsstofu,

Fimmtudagur 5. nóvember

17.30  Kynning á stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Róm FAO og WFP í höfuðstöðvum FAO

18:45 Mótttaka í sendiráðsbústaðnum


Föstudagur 6.nóvember með fyrirvara um breytingar

  • Gengið frá Citizen M hótelinu í sendiráðið
  • Samskiptin við Ítalíu, starfsemi sendiráðs og fastanefndar; ítalskt samfélag og pólitík GÁ sendiherra
  • Ítalskur efnahagur efnahagsdeild Intesa San Paolo bankans eða Renato Loiero, efnahagsráðgjafi forsætisráðherra
  • Ítalskur fjármálamarkaður: Slagsmál og yfirtökur, Gunnar Jakobsson, Unicredit
  • Íslenskur fiskur á ítölskum markaði, Andrea og Gianluca Eminente, Unifrigo í Napolí

    Hádegisverður 1230-1430

  • Orkumál (Francesco Starace - með fyrirvara), samstarfsmöguleikar
  • Kynning frá annað hvort ráðuneyti "efnahagsþróunar og Made in Italy" eða Cofindustria (Samtök iðnaðarins) um útflutning
  • Heimsókn í Fendi-tískuhúsið í Colosseo Quadrato í lok dags

Skráning með þvi að smella hér. Nánari upplýsingar hjá kristin@chamber.is

Millilandaráðin

Millilandaráðin & The Bilateral Chambers

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

105 Reykjavík

Hafa samband / Contact

bilateral@chamber.is

+354 510 7100