Veffundur | Fyrstu skref fyrirtækja á Noregsmarkaði 12. maí

Veffundur | Fyrstu skref fyrirtækja á Noregsmarkaði

– Skatta- og starfsmannamál –

Norsk-íslenska viðskiptaráðið og Sendiráð Íslands í Noregi, í samvinnu við Íslandsstofu og Arntzen Grette, halda veffund um inngöngu fyrirtækja á Noregsmarkað með sérstaka áherslu á skatta- og starfsmannamálum.

Á fundinum verður farið yfir hagnýt atriði sem fyrirtæki þurfa að hafa í huga, auk þess sem fulltrúar  EFLU deila dýrmætri reynslu sinni af starfsemi í landinu.

Fundurinn verður á ensku.

Vinsamlega skráið ykkur á viðburðinn hér

📅 Dagsetning: Þriðjudagurinn, 12. maí 2026
⏰ Tímasetning: kl. 13:00–14:00 GMT / 15:00–16:00  CET
📍 Staðsetning: Veffundur

Dagskrá:

  • Fundarstjórn og hagnýt atriði
    • Sigríður Þormóðsdóttir stýrir fundinum
  • Kynning á Norsk-íslenska viðskiptaráðinu
    • Steinunn Kristín Þórðardóttir fer yfir starfsemi og stuðning ráðsins.
  • Tækifæri á Noregsmarkaði og kynning á Arntzen Grette
    • Margrét Gunnarsdóttir, sérfræðingur í EES-rétti og opinberum innkaupum, fer yfir viðskiptatækifæri í opinbera geiranum og kynnir starfsemi lögmannsstofunnar Arntzen Grette.
  • Stofnun fyrirtækis og skattamál í Noregi
    • Rudi Hamansen, sérfræðingur í félagarétti og skatti, fer yfir helstu atriði varðandi stofnun og skattalega umgjörð sem fyrirtæki þurfa að hafa í huga.
  • Vinnuréttur og starfsmannamál
    • Elisa Eichstetter, sérfræðingur í vinnurétti, útskýrir mikilvægustu reglurnar sem gilda um starfsfólk og ráðningar í Noregi.
  • Reynslusaga: EFLA verkfræðistofa
    • Ragnar Jónsson og Guðrún Hulda Eyþórsdóttir deila hagnýtri reynslu og lærdómi af starfsemi sinni í Noregi.

Spurningar og spjall

Millilandaráðin

Millilandaráðin & The Bilateral Chambers

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

105 Reykjavík

Hafa samband / Contact

bilateral@chamber.is

+354 510 7100