Árlegt golfmót á The Scandinavian golfvellinum rétt fyrir utan Kaupmannahöfn

Tryggðu þér þátttöku í golfmóti Dansk-íslenska viðskiptaráðsins með því að skrá þig núna.

Dansk-íslenska viðskiptaráðið býður aðildarfélögum og gestum þeirra að taka þátt í golfmóti ráðsins, Scandic Invitational í Kaupmannahöfn þann 19. ágúst . 

Spilað verður á hinum þekkta golfvellli, The Scandinavian, sem er skemmtilegur golfvöllur rétt fyrir utan Kaupmannahöfn með tveimur golfvöllum sem báðir hafa lengi verið á meðal topp 50 bestu golfvalla í Evrópu. Þetta er einstakt tækifæri til að spila á þessum frábæra velli sem almennt er einungis aðgengilegur fyrir meðlimi og þeirra gesti. 

Nánari upplýsingar um The Scandinavian eru hér að neðan.   

Eftir mótið verður léttur kvöldverður og sigurvegurum golfmótsins verða veitt verðlaun.  

Í boði er að kaupa eitt holl eða fleiri. Innifalið í verði eru 18 holur á Scandinavian golfvellinum: þátttaka í golfmótinu, nestispakki, tveggja rétta kvöldverður, aðgangur að æfingasvæði á golfdeginum og teiggjafir. Þátttökugjald er 60.000 kr. á mann eða 240.000 kr. fyrir hollið. Fyrsti rástími verður líklega um kl. 14:30, en það verður staðfest snemma sumars. 

Gert er ráð fyrir að þátttakendur geti flogið út með morgunflugi 19. ágúst og til baka með morgunflugi 20. águst. Vinsamlega veitið því athygli að þátttakendur bóka eigið flug og gistingu. 

Takmarkaður fjöldi holla er í boði á golfmótinu og skráning er staðfest með greiðslu staðfestingagjalds. Meðlimir í Dansk-íslenska viðskiptaráðinu hafa forgang við bókun. 

Nánari upplýsingar veitir Stella Stefánsdóttir (stella@chamber.is).

Skráning á golfmótið

Millilandaráðin

Millilandaráðin & The Bilateral Chambers

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

105 Reykjavík

Hafa samband / Contact

bilateral@chamber.is

+354 510 7100