Bresk-íslenska viðskiptaráðið býður aðildarfélögum að taka þátt í árlegu golfmóti þann 8. maí 2026 á einum glæsilegasta golfvelli Bretlands, The Grove. Hið árlega golfmót hefur fest sig í sessi sem einn eftirsóknarverðasti viðburður Bresk-íslenska viðskiptaráðsins.
Takmarkaður fjöldi holla í boði. Alla jafnan er uppselt á golfdaginn tæplega ári fram í tímann.
The Grove er hannaður af Kyle Phillis. Staðsetning golfvallar og hótels er aðeins 20 mínútur frá Heathrow flugvelli og 30 mínútur frá miðborg Lundúna. Á hótelinu eru þrír veitingastaðir, þrír barir, tvær sundlaugar, veislusalur, fullkomin líkamsræktarsalur og lúxus heilsulind.
Í boði er að kaupa eitt holl eða fleiri. Innifalið í verði eru 18 holur, hádegismatur, þriggja rétta kvöldverður, aðgangur að æfingasvæði á golfdeginum, teiggjafir og golfbíll.
Vinsamlega veitið því athygli að hver og einn bókar sitt flug og hotel. Eftir bókun á holli gefst þátttakendum kostur á að nýta sér afsláttarkjör á The Grove Hotel https://www.thegrove.co.uk/ (að því gefnu að það sé enn laust).
Skráning stendur yfir og er eins og áður segir er takmarkaður fjöldi holla í boði.
Nánari upplýsingar veitir Stella Stefánsdóttir sem tekur einnig á móti skráningum (stella@chamber.is)

