Í tilefni fánadags Færeyja verður efnt til fundar í Norræna húsinu þann 24. apríl kl. 15:00.
Guðjón Davíðsson, formaður Færeysk-íslenska viðskiptaráðsins og framkvæmdastjóri True North, setur fundinn og býður gesti velkomna.
Ben Arabo, formaður Vest Pack, forstjóri Framtaks og nýkjörinn Løgtingsmaður flytur erindi um
„Faroese business and investment environment"
📅 Dagsetning: 24. april 2026
⏰ Tímasetning: Kl 15.00-16.00
📍 Staðsetning: Norræna húsið, Reykjavík
Færeyski fánadagurinn (á færeysku Flaggdagur) er haldinn 25. apríl ár hvert.
Á þeim degi er þess minnst að færeyski fáninn, Merkið, var formlega viðurkenndur árið 1940, á tímum Seinni heimsstyrjaldarinnar. Bretar tóku þá tímabundið yfir stjórn eyjanna og heimiluðu Færeyingum að nota sinn eigin fána í stað þess danska.
Fánadagurinn er því bæði tákn um þjóðarvitund Færeyinga og mikilvægt skref í átt að auknu sjálfstæði frá Danmörku.
Skráning með þvi að smella hér

