Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið boðar til aðalfundar sem haldinn verður:
Hvar: PINK ICELAND, Skólavörðustígur 16, 4. hæð (gengið inn frá Óðinsgötu)
Hvenær: Þriðjudaginn 21. apríl 2026 kl. 17:00 GMT
Dagskrá aðalfundar verður í samræmi við 11. gr. samþykkta félagsins:
- Skýrsla stjórnar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnarmanna
- Yfirferð yfir fjárhag ársins í samræmi við innheimt árgjöld
- Kynning á fjárhagsáætlun næsta rekstrarárs og ákvörðun árgjalda
- Breytingar á samþykktum
- Önnur mál
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Með bestu kveðju,
Stjórnin
Skráning hjá kristin@chamber.is

