Viðskiptaferð Þýsk-íslenska viðskiptaráðsins, Íslandsstofu og sendiráðs Íslands i Þýskalandi til Berlínar dagana 24.-26. september 2026

Hér gefst einstakt tækifæri til að kynnast þessum mikilvæga markaði sem telur um 83 milljónir neytenda eða 19% af íbúum evrópska efnahagssvæðisins. Þýskalandsmarkaður er stærsti neytendamarkaður Evrópu í evrum talið með um fjórðung af vergri landsframleiðslu (GDP) Evrópusambandsþjóðanna.

Farið verður í heimsókn til fyrirtækja, hagsmunasamtaka, frumkvöðlaseturs og ráðuneytis stafrænna málefna, í fylgd ráðherra.

Áhersla verður lögð á stafræna þróun, tækni og nýsköpun

Dagskrá föstudaginn 25. september         

  • DIHK  eru samtök þýskra viðskiptaráða, bæði innan og utan Þýskalands. Sérfræðingar munu fara yfir stöðu og horfur í efnahagsmálum, og rætt verður um tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki á þýskum markaði — og hvaða kerfisbreytingar þarf til að ræsa vélarnar í Þýskalandi
    .
  • Deutsche Grammophon, var stofnað 1898 og er nú hluti af Universal Music Group. Dæmi um rótgróið þýskt fyrirtæki sem þróað hefur starfsemi sína í takt við örar tækniframfarir - allt frá því að finna upp hljómplötuna í að verða leiðandi stafrænt fyrirtæki í skapandi greinum.
  • Merantix AI Campus ,er nýsköpunar- og frumkvöðlasetur í Berlín með rúmlega 80 fyrirtæki innan sinna vébanda. Starfrækt frá árinu 2021 og sameinar fyrirtæki, sérfræðinga og fjárfesta sem vinna að því að styrkja stöðu gervigreindar í Evrópu.
  • Ráðuneyti stafrænna málefna og nútímavæðingar (Bundesministerium für Digitales und Staatsmodernisierung) er nýtt ráðuneyti sem  sett á fót í maí 2025 sem hefur það verkefni að ýta undir stafræna væðingu og nútímavæða starfsemi hins opinbera.
    Karsten Wildberger ráðherra var áður forstjóri fyrirtækjasamsteypunnar MediaMarkt/Saturn. Rætt verður meðal annars um hvert þýsk stjórnvöld hyggjast stefna í stafrænni þróun næstu árin, og hvort Þjóðverjar séu opnir fyrir samstarfi við aðrar þjóðir í þeim málaflokki.
  • Tengslamyndunarmóttaka í upphafi dagskrár í boði sendiherra Íslands i Þýskalandi og kvöldverður á veitingastað í lok dagskrár

Vinsamlega veitið því athygli að hver og einn bókar sitt flug og hótel.

Hótelvalkostir í nágrenni sendiráðsins:

  1. Pestana  beint á móti sendiráðinu,
  2. Motel One Tiergarten 5 mínútur með leigubíl að sendiráðinu

Skráning stendur yfir. Smellið á skráningarhlekkinn hér

Þátttökugjaldið er kr. 38.000.-. Innifalið í verðinu er meðal annars akstur á milli staða og kvöldverður.

Millilandaráðin

Millilandaráðin & The Bilateral Chambers

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

105 Reykjavík

Hafa samband / Contact

bilateral@chamber.is

+354 510 7100