Kerecis býður aðildarfélögum Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins og Þýsk-íslenska viðskiptaráðsins til kynningar og miðvetrarfögnuðar í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík þann 14. febrúar kl. 16:30. Viðburðurinn er eingöngu ætlaður aðildarfélögum og gestum þeirra.
Þetta er upplagt tækifæri til að kynnast starfsemi Kerecis betur, fræðast um framtíðarsýn fyrirtækisins og njóta góðra veitinga í skemmtilegum félagsskap.
Dagskrá viðburðarins:
- 16:30 Kynning á Kerecis
- 17:30 Miðvetrarfögnuður Kerecis, tónlist og léttar veitingar
Skráning er hafin og fer fram með því að smella hér.