Árlegur fundur Íslandsstofu og Millilandaráðanna

Þann 8. janúar bauð Íslandsstofa stjórnarmönnum allra 15 Millilandaráðanna til kynningarfundar í höfuðstöðvum sínum í Grósku, Reykjavík.

Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, hóf fundinn með kynningu á starfsemi, skipulagi og fjárhagsramma stofunnar. Hann fór einnig yfir helstu árangurspunkta ársins 2024 og kynnti framtíðarsýn Íslandsstofu um áherslur í þeirra kynningum á  Íslandi á erlendum mörkuðum árið 2025.

Í framhaldi af því kynnti Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, Forstöðumaður útflutnings og fjárfestinga og Fagstjóri orku og grænna lausna, áherslusviðin eða útflutningsgreinarnar sem Íslandsstofa skiptir starfsemi sinni niður í, en þau eru:

  • Orka og grænar lausnir
  • Hugvit og tækni
  • Listir og skapandi greinar
  • Ferðaþjónusta
  • Sjávarútvegur og matvæli

Fagstjórar hvers sviðs kynntu svo stuttlega helstu verkefni og viðburði sem áætlaðir eru árið 2025 og ræddu möguleika á samstarfi við Millilandaráðin.

Fundinum lauk með tengslamyndun, þar sem stjórnarmenn fengu tækifæri til að spjalla við starfsfólk Íslandsstofu og ræða möguleika á samstarfsfleti.

Millilandaráðin þakka Íslandsstofu fyrir góðar móttökur en þessi árlegi fundur styrkir áfram samband Íslandsstofu og Millilandaráðanna og hvetur til frekara samstarfs og nýsköpunar sem leiðir til frekari tenginga á milli Íslands og erlendra markaða.

Millilandaráðin

Millilandaráðin & The Bilateral Chambers

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

105 Reykjavík

Hafa samband / Contact

bilateral@chamber.is

+354 510 7100