Í fallega veðrinu þann 30. apríl síðastliðinn fögnuðu meðlimir í Þýsk-íslenska viðskiptaráðinu og gestir þeirra vorinu með Spargel-Abend á Nauthól. Uppselt var á viðburðinn og því húsfyllli á Nauthól.
Kvöldið hófst á Jäger Mule fordrykk úti í sólinni í boði Ölgerðarinnar undir ljúfum tónum tónlistarmannanna Sölva Kolbeinssonar sem spilar á saxafón og Sigmars Þórs Matthíassonar á kontrabassa.
Helga Braga fór á kostum sem veislustjóri enda af þýskum ættum og á nokkra óborganlega þýska “karaktera” sem skemmtu gestum. Helgi Björnsson átti frábæra innkomu og tók skemmtileg lög fyrir gesti við undirleik Stefáns Magnússonar. Spergillinn spilaði að sjálfsögðu stórt hlutverk í matseðli kvöldsins.
Eins og myndirnar gefa til kynna var frábær stemmning á Nauthól í gær. Hægt er að skoða fleiri myndir á facebook síðu Þýsk-íslenska viðskiptaráðsins með því að smella hér.
Stjórn Þýsk-íslenska viðskiptaráðsins þakkar gestum fyrir komuna og er þegar farin að hlakka til Spargel-Abend vorið 2025.
Ljósmyndari: Hulda Margrét Ólafsdóttir.
Starfsfólk Millilandaráðanna tóku einnig nokkrar myndir.