Eins og flest vita er Landsbankinn að flytja höfuðstöðvar sínar úr þessu sögufræga húsi sem byggt er í ný-endurreisnarstíl en sá stíll á eimmitt uppruna sinn að rekja til 19.aldar Ítalíu. Því má segja að húsið sé byggt í ítölskum stíl!
Landsbankinn býður félögum í Ítalsk-íslenska viðskiptaráðinu í ítalskan aperitivo. Gestum býðst leiðsögn um hina fögru myndlist sem í húsinu er auk þess sem ítalskir tónar munu hljóma.
Öll velkomin en skrá þarf þátttöku fyrir 14. apríl með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
- Hvar: Landsbankanum, Austurstræti 11 (gengið inn um innganginn í Austurstræti gegnt Vínbúðinni)
- Hvenær: Þriðjudaginn 18. apríl klukkan 17:00-18:30