Dansk-íslenska viðskiptaráðið boðar til aðalfundar föstudaginn 22. maí 2020 n.k. í Borgartún 35, kl. 9:00.
Dagskrá aðalfundar verður í samræmi við 12. gr. samþykkta félagsins sem hér segir:
- Fundarsetning, kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Ársreikningar
- Lagabreytingar
- Kosning stjórnar a. formanns b. annarra stjórnarmanna sbr. 5. gr.
- Kosning tveggja endurskoðenda
- Ákvörðun um félagsgjöld
- Önnur mál
Stjórnin leggur til eftirfarandi breytingu á samþykktum ráðsins.
4.grein verði svohljóðandi:
Starfsemi félagsins er fjármögnuð með félagsgjöldum, sem ákveðin eru af aðalfundi og fenginni tillögu stjórnar, svo og annarri starfsemi sem fram fer á vegum félagsins. Aðalfundur velur úr sínum hópi tvo endurskoðendur til að fara yfir og árita reikninga félagsins. Fjárhagsár félagsins er 1.1.-31.12.
Úrsögn úr félaginu þarf að vera skrifleg og tekur gildi frá og með næstu áramótum eftir að hún berst. Úrsögn breytir engu um skyldu til greiðslu árgjalds á yfirstandandi reikningsári.
5.gr. verði svohljóðandi:
Stjórn félagsins skipa mest 13 menn, kosnir á aðalfundi. Formaður skal kosinn sérstaklega. Stjórn skal tilnefna framkvæmdastjóra sem ber ábyrgð á daglegum störfum ráðsins.