Í byrjun nóvember fór viðskiptasendinefnd á vegum Ítalsk-íslenska viðskiptaráðsins (ÍTÍS) til Rómar undir forystu Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Markmið ferðarinnar var að styrkja tengsl við ítalska viðskiptaaðila og kynnast betur þeim tækifærum sem Ítalía býður upp á.
Sendinefndinni var boðið á kynningu á starfsemi stofnana Sameinuðu þjóðanna í Róm, í höfuðstöðvum FAO, og síðan í móttöku í sendiherrabústaðnum. Þar kynnti Guðmundur Árnason sendiherra starfsemi sendiráðsins og fastanefndarinnar og fjallaði um ítalskt samfélag og stjórnmál.
Hópurinn hlýddi jafnframt á fjölbreytt erindi:
• Blaðamaður frá Corriere della Sera, einu af stærstu dagblöðum Ítalíu, fjallaði um ítalskt samfélag.
• Sérfræðingur frá Intesa Sanpaolo fór yfir efnahagshorfur Ítalíu.
• Gunnar Jakobsson, stjórnandi hjá UniCredit, ræddi um sviptingar í fjármálageiranum.
• Gianluca Eminente, ræðismaður Íslands í Napólí, og sonur hans, Andrea Eminente, ræddu um innflutning á íslenskum fiski til Ítalíu. Þeir feðgar eru meðal stærstu innflytjenda íslensks fisks þar í landi.
Að lokum heimsótti sendinefndin ráðuneyti fyrirtækja og „Made in Italy“. Þar fékk hún kynningu á þeim tækifærum og stuðningi sem íslenskum fyrirtækjum standa til boða til að auka fjárfestingar og viðskipti milli landanna
.

