Þýskaland er fjölmennasta ríki Evrópu og þriðja stærsta hagkerfi heims. Þýska hagkerfið er óðaönn að takast á við framtíðaráskoranir sem felast meðal annars í aukinni samkeppni og hraðri tæknivæðingu s.s. með hagnýtingu gervigreindar. Rótgróin fyrirtæki eru í umbreytingarferli að innleiða nýja tækni og aðferðir, nýsköpunarfyrirtækjum fjölgar ört og hið opinbera boðar byltingu í nýtingu stafrænna lausna.
Í viðskiptaferðinni, sem leidd er af Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra, gefst einstakt tækifæri til að kynnast þessum mikilvæga markaði sem telur um 83 milljónir neytenda eða 19% af íbúum evrópska efnahagssvæðisins. Þýskalandsmarkaður er stærsti neytendamarkaður Evrópu í evrum talið með um fjórðung af vergri landsframleiðslu (GDP) Evrópusambandsþjóðanna. Þýskaland er sögulega um 4. stærsta viðskiptaland Íslands.
Heimsótt verða þýsk fyrirtæki, bæði stór og smá, hagsmunasamtök og stjórnvöld og rætt við fulltrúa þeirra. Lögð verður sérstök áhersla á stafræna þróun, tækni og nýsköpun. Í tengslum við dagskránna er möguleiki fyrir einstök fyrirtæki að koma á eigin fundum.
----------------
Fimmtudagur 24. september
Tengslamyndunarmóttaka með góðum gestum í upphafi dagskrár í boði sendiherra Íslands í Þýskalandi í sendirráðsbústaðnum kl 17.00. Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari þýska handboltalandsliðsins heiðrar okkur með nærveru sinni.
Kvöldverður, hver og einn sér um sig
----------------
Föstudagur 25. september ( með fyrirvara um breytingar og tímaröð dagskrárliða ) .
Hefjum daginn i húsnæði íslenska sendirráðsins. Einstaklega fallegt svæði þar sem Ísland deilir með hinum Norðurlöndunum.
Innlegg frá Deutsche Industrie und Handelskammer sem eru samtök þýskra viðskiptaráða innan og utan Þýskalands. Sérfræðingar fara yfir stöðu og horfur efnahagsmála og rætt um tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki á þýskum markaði.
Ráðuneyti stafrænna málefna og nútímavæðingar er nýtt ráðuneyti sett á fót í maí 2025 sem hefur það verkefni að ýta undir stafræna væðingu og nútímavæða starfsemi hins opinbera. Karsten Wildberger ráðherra var áður forstjóri fyrirtækjasamsteypunnar MediaMarkt/Saturn.
Merantix AI Campus er nýsköpunar- og frumkvöðlasetur í Berlín með rúmlega 80 fyrirtæki innan sinna vébanda. Starfrækt frá árinu 2021 og sameinar fyrirtæki, sérfræðinga og fjárfesta sem vinna að því að styrkja stöðu gervigreindar í Evrópu.
Deutsche Grammophon stofnað 1898 og er nú hluti af Universal Music Group. Dæmi um rótgróið þýskt fyrirtæki sem þróað hefur starfsemi sína í takt við örar tækniframfarir - allt frá því að finna upp hljómplötuna í að verða leiðandi stafrænt fyrirtæki í skapandi greinum.
Kvöldverður á veitingastað í lok dagskrár
Með í för á föstudeginum verður
Arthúr Björgvin Bollason, fjölmiðlamaður með meiru. Ekið verður i gegnum sögulega staði i Berlín, en Arthúr gjörþekkir borgina og sögu hennar.
Laugardagur 26. september ( frjáls dagur)
Vakin er athygli á þvi að nýkrýndir Þýskalandsmeisarar i körfubolta, Alba Berlin keppir á laugardeginum i Berlín.
Í Magdeburg munu hinsvegar Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon keppa með sínu liði á sama tíma
Fyrir maraþonhlaupara; Berlínar maraþonið fer fram á sunnudeginum 27,. september.
Vinsamlega veitið því athygli að hver og einn bókar sitt flug og hótel.
Skráning stendur yfir. Smellið á skráningarhlekkinn hér: https://forms.gle/6EiWzvQdgCWhcwQK8
Þátttökugjaldið er kr. 38.000.-. Innifalið í verðinu er meðal annars akstur á milli staða og kvöldverður.
Aðeins skammur tími er eftir til að skrá sig!

