Veffundur | Fyrstu skref fyrirtækja á Noregsmarkaði
– Skatta- og starfsmannamál –
Norsk-íslenska viðskiptaráðið og Sendiráð Íslands í Noregi, í samvinnu við Íslandsstofu og Arntzen Grette, halda veffund um inngöngu fyrirtækja á Noregsmarkað með sérstaka áherslu á skatta- og starfsmannamálum.
Á fundinum verður farið yfir hagnýt atriði sem fyrirtæki þurfa að hafa í huga, auk þess sem fulltrúar EFLU deila dýrmætri reynslu sinni af starfsemi í landinu.
Fundurinn verður á ensku.
📅 Dagsetning: Þriðjudagurinn, 12. maí 2026
⏰ Tímasetning: kl. 13:00–14:00 GMT / 15:00–16:00 CET
📍 Staðsetning: Veffundur
Dagskrá:
- Fundarstjórn og hagnýt atriði
- Sigríður Þormóðsdóttir stýrir fundinum
- Kynning á Norsk-íslenska viðskiptaráðinu
- Steinunn Kristín Þórðardóttir fer yfir starfsemi og stuðning ráðsins.
- Tækifæri á Noregsmarkaði og kynning á Arntzen Grette
- Margrét Gunnarsdóttir, sérfræðingur í EES-rétti og opinberum innkaupum, fer yfir viðskiptatækifæri í opinbera geiranum og kynnir starfsemi lögmannsstofunnar Arntzen Grette.
- Stofnun fyrirtækis og skattamál í Noregi
- Rudi Hamansen, sérfræðingur í félagarétti og skatti, fer yfir helstu atriði varðandi stofnun og skattalega umgjörð sem fyrirtæki þurfa að hafa í huga.
- Vinnuréttur og starfsmannamál
- Elisa Eichstetter, sérfræðingur í vinnurétti, útskýrir mikilvægustu reglurnar sem gilda um starfsfólk og ráðningar í Noregi.
- Reynslusaga: EFLA verkfræðistofa
- Ragnar Jónsson og Guðrún Hulda Eyþórsdóttir deila hagnýtri reynslu og lærdómi af starfsemi sinni í Noregi.
Spurningar og spjall

