Hér gefst einstakt tækifæri til að kynnast þessum mikilvæga markaði sem telur um 83 milljónir neytenda eða 19% af íbúum evrópska efnahagssvæðisins. Þýskalandsmarkaður er stærsti neytendamarkaður Evrópu í evrum talið með um fjórðung af vergri landsframleiðslu (GDP) Evrópusambandsþjóðanna.
Í viðskiptaferðinni verða heimsótt þýsk fyrirtæki, hagsmunasamtök og stjórnvöld
Áhersla verður lögð á stafræna þróun, tækni og nýsköpun
Dagskrá föstudaginn 25. september ( Með fyrirvara um breytingar) .
- DIHK ( Samtök viðskiptaráða í Þýskalandi). Sérfræðingar fara yfir stöðu efnahagsmála og tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki.
- Deutsche Grammofon, stofnað 1898. Stofnendurnir fundu upp hljómplötuna og grammofóninn. Bylting i starfseminni frá stofnun frá pressuðum hljómplötum yfir i stafrrænt fyrirtæki.
- Merantix AI Campus ,Heimsókn í nýsköpunar- og frumkvöðlasetur
- Konrad Adenauer húsið- höfuðstöðvar Kristilegra Demókrata ( CDU)
- Ráðuneyti stafrænna málefna og nútímavæðingar (Bundesministerium für Digitales und Staatsmodernisierung)
- Tengslamyndunarmóttaka í upphafi dagskrár í boði sendiherra Íslands i Þýskalandi og kvöldverður á veitingastað í lok dagskrár
Vinsamlega veitið því athygli að hver og einn bókar sitt flug og hótel.
Hótelvalkostir í nágrenni sendiráðsins:
- Pestana beint á móti sendiráðinu, um 160 evrur á nótt
- Motel One Tiergarten 5 mínútur með leigubíl að sendiráðinu, um 120 evrur á nótt,
Skráning stendur yfir hjá kristin@chamber.is

