Árlegt golfmót á The Grove 8. maí 2026

Bresk-íslenska viðskiptaráðið býður aðildarfélögum að taka þátt í árlegu golfmóti  þann 8. maí 2026 á einum glæsilegasta golfvelli Bretlands, The Grove. Hið árlega golfmót hefur fest sig í sessi sem einn eftirsóknarverðasti viðburður Bresk-íslenska viðskiptaráðsins.

Takmarkaður fjöldi holla í boði. Alla jafnan er uppselt á golfdaginn tæplega ári fram í tímann.

The Grove er hannaður af Kyle Phillis. Staðsetning golfvallar og hótels er aðeins 20 mínútur frá Heathrow flugvelli og 30 mínútur frá miðborg Lundúna. Á hótelinu eru þrír veitingastaðir, þrír barir, tvær sundlaugar, veislusalur, fullkomin líkamsræktarsalur og lúxus heilsulind.

Í boði er að kaupa eitt holl eða fleiri. Innifalið í verði eru 18 holur, hádegismatur, þriggja rétta kvöldverður, aðgangur að æfingasvæði á golfdeginum, teiggjafir og golfbíll.

Vinsamlega veitið því athygli að hver og einn bókar sitt flug og hotel. Eftir bókun á holli gefst þátttakendum kostur á að nýta sér afsláttarkjör á The Grove Hotel  https://www.thegrove.co.uk/ (að því gefnu að það sé enn laust). 

Skráning stendur yfir og er eins og áður segir er takmarkaður fjöldi holla í boði. 

Nánari upplýsingar veitir Stella Stefánsdóttir sem tekur einnig á móti skráningum (stella@chamber.is)

Millilandaráðin

Millilandaráðin & The Bilateral Chambers

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

105 Reykjavík

Hafa samband / Contact

bilateral@chamber.is

+354 510 7100