Japansk-íslenska viðskiptaráðið boðar til ársfundar fimmtudaginn 4. desember 2025, kl. 17:00. Aðalfundurinn verður haldinn í sendiráðsbústað sendiherra Japans á Íslandi.
Dagskrá aðalfundar verður í samræmi við 11. gr. samþykkta félagsins sem hér segir:
- Skýrsla stjórnar
- Kosning formanns
- Kosning stjórnarmanna
- Yfirferð yfir fjárhag ársins í samræmi við innheimt árgjöld
- Kynning á fjárhagsáætlun næsta rekstrarárs og ákvörðun árgjalda
- Breytingar á samþykktum
- Önnur mál
Stjórnin

