Opinn fundur DIV og GLIS þann 5.júní

Af tilefni þjóðhátíðardaga Danmerkur og Grænlands í júní,  munu Dansk-íslenska viðskiptaráðið og Grænlensk-íslenska viðskiptaráðið bjóða upp á smørrebrød og áhugaverð erindi um uppbyggingu vindorkuvera á Íslandi og nýtingu íslenskrar orkuþekkingar á Grænlandi. Fundurinn verður þann 5. júní kl. 16:30. 

Íslendingar búa yfir mikilli þekkingu og reynslu á sviði grænnar orku. Mikil tækifæri liggja í útflutningi á íslensku hugviti á þessu sviði og eru Íslendingar að nýta þau í auknum mæli. Á fundinum mun Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður Qair, ræða hvernig hægt er að nýta og kynna þekkingu á íslenskum orkuinnviðum á Grænlandi.

Umræða um vindorku á Íslandi er að sækja í sig veðrið. Nýlega samdi Landsvirkjun við Ístak um byggingu mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins. Upphæð samningsins nemur um 6,8 milljörðum króna. Danir eru á meðal fremstu þjóða í að beisla vindorku og hefur landið gjarnan verið nefnt land vindorkunnar.

Franska orkufyrirtækið Qair er eitt þeirra fyrirtækja sem þróa nú og undirbúa vindorkugarða víða um land. Unnur María Þorvaldsdóttir forstöðumaður vindorku hjá Landsvirkjun og Ásgeir Margeirsson munu ræða framtíð vindorku á Íslandi, ný vindorkuver og hvað má læra af Dönum á þessu sviði.  

ÍSTAK býður gestum upp á smørrebrød frá Jómfrúnni. 

Vinsamlega skráðu þig á viðburðinn með því að SMELLA HÉR

Staður: Hús Atvinnulífsins, Borgartún 35, Reykjavík

Dagsetning: 5. júní

Tími: kl. 16:30-18:00

Dansk-íslenska

viðskiptaráðið

Hús atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Hafa samband

bilateral@chamber.is

+354 510 7100