Tækifæri á breyttum þýskum markaði – Vel heppnaður morgunfundur.

Þýsk-íslenska viðskiptaráðið stóð fyrir vel sóttum morgunfundi síðastliðinn föstudag þar sem rætt var um breytta stöðu á þýska markaðnum og þau tækifæri sem íslensk fyrirtæki gætu nýtt sér í kjölfarið.
Doris Grunert-Schächter, nýr viðskiptafulltrúi Sendiráðs Íslands í Berlín, fór yfir pólitísk og efnahagsleg umskipti í landinu og vakti athygli á spennandi tækifærum fyrir íslenskt atvinnulíf. Einnig deildu Auðunn Atlason, sendiherra Íslands í Þýskalandi, og Baddý Sonja Breidert, forstjóri 1xINTERNET, reynslu sinni og innsýn beint frá Þýskalandi.
Við þökkum öllum fyrirlesurum kærlega fyrir framlag sitt og fundargestum – bæði á staðnum og í fjarfundi – fyrir þátttökuna!

Hægt er að skoða fleiri myndir á Facebook síðu Þýsk-íslenska viðskiptaráðsins með því að smella hér

Þýsk-íslenska viðskiptaráðið

Hús atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Hafa samband

bilateral@chamber.is

+354 510 7100