Í gegnum árin hefur Steikardinner AMÍS fest sig í sessi sem einn af skemmtilegustu viðburðum atvinnulífsins – og í ár verður engin undantekning!
Steikarkvöld AMÍS er kjörinn vettvangur til að bjóða samstarfsfólki, viðskiptavinum og góðum gestum upp á glæsilega kvöldstund með amerísku ívafi, frábærri skemmtun og dásamlegum mat.
Dagskráin í ár verður einstaklega glæsileg:
Á svið stíga; Hreimur, Selma Björns, Regína Ósk, Unnsteinn Manúel, Sigga Beinteins og sjálfur Daníel Ágúst. Kynnir kvöldsins verður Þórdís Valsdóttir – og við lofum frábærri stemmingu eins og alltaf.
Kvöldið hefst kl. 19:30 með fordrykk í boði Ölgerðarinnar. Að því loknu verður gengið til borðs í aðalsal Hilton Reykjavík Nordica þar sem framreiddur verður ljúffengur kvöldverður ásamt völdum drykkjum.
Miðaverð: 24.900 kr. á mann
Einungis eru seld heil borð (10 manna) og aðeins félagsmenn í AMÍS geta bókað.
Borðapantanir eru staðfestar með greiðslu og eru óendurkræfar.
Til að tryggja ykkur sæti – sendið pöntun á: anitao@icehotels.is
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa AMÍS (bilateral@chamber.is) eða Aníta Ólafsdóttir á Hilton Reykjavík Nordica (anitao@icehotels.is).
Við hvetjum þig til að tryggja borð fyrir þitt fólk strax í dag.