Þann 8. janúar bauð Íslandsstofa stjórnarmönnum allra 15 Millilandaráðanna til kynningarfundar í höfuðstöðvum sínum í Grósku, Reykjavík.
Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, hóf fundinn með kynningu á starfsemi, skipulagi og fjárhagsramma stofunnar. Hann fór einnig yfir helstu árangurspunkta ársins 2024 og kynnti framtíðarsýn Íslandsstofu um áherslur í þeirra kynningum á Íslandi á erlendum mörkuðum árið 2025.
Í framhaldi af því kynnti Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, Forstöðumaður útflutnings og fjárfestinga og Fagstjóri orku og grænna lausna, áherslusviðin eða útflutningsgreinarnar sem Íslandsstofa skiptir starfsemi sinni niður í, en þau eru:
- Orka og grænar lausnir
- Hugvit og tækni
- Listir og skapandi greinar
- Ferðaþjónusta
- Sjávarútvegur og matvæli
Fagstjórar hvers sviðs kynntu svo stuttlega helstu verkefni og viðburði sem áætlaðir eru árið 2025 og ræddu möguleika á samstarfi við Millilandaráðin.
Fundinum lauk með tengslamyndun, þar sem stjórnarmenn fengu tækifæri til að spjalla við starfsfólk Íslandsstofu og ræða möguleika á samstarfsfleti.
Millilandaráðin þakka Íslandsstofu fyrir góðar móttökur en þessi árlegi fundur styrkir áfram samband Íslandsstofu og Millilandaráðanna og hvetur til frekara samstarfs og nýsköpunar sem leiðir til frekari tenginga á milli Íslands og erlendra markaða.