Eftirmiðdagsfundur AMÍS og SFS
fimmtudaginn 12.október
Höfuðstöðvum Landsbankans
kl. 16-18.
Amerísk-íslenska viðskiptaráðið og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi ásamt Landsbankanum efna til fundar í sal nýja Landsbankans þann 12. október næstkomandi.
Yfirskrift fundarins er: Bandaríkin; land tækifæra í sjávarútvegi.
Aðalfyrirlesari verður Einar Gustafsson, forstjóri American Seafoods en hann mun tala um útgerð, vinnslu og markaði í sjávarútvegi í Bandaríkjunum.
Einnig mun Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, forstöðumaður útflutningur og fjárfestingar hjá Íslandsstofu flytja erindið: Viðhorf neytenda í Bandaríkjunum til Íslands og íslenskra sjávarafurða.
Að lokum mun Laufey Rún Ketilsdóttir, upplýsingafulltrúi SFS og fundarstjóri fundarins stýra panel þar sem fyrirlesarar sitja fyrir svörum.
Fundurinn hefst kl. 16:00.
Vinsamlegast skráið ykkur á fundinn með því að smella á going á Facebook-síðu AMÍS.