Norðurslóða viðskiptaráðið boðar til aðalfundar þriðjudaginn 10. október 2023 n.k. kl. 11:00 í fundarsal Courtyard by Marriott hótelsins, Aðalgötu 60, Reykjanesbæ.
Dagskrá aðalfundar verður í samræmi við 11. gr. samþykkta félagsins sem hér segir:
Skýrsla stjórnar
Kosning formanns
Kosning stjórnarmanna
Yfirferð yfir fjárhag ársins í samræmi við innheimt árgjöld
Kynning á fjárhagsáætlun næsta rekstrarárs og ákvörðun árgjalda
Breytingar á samþykktum
Önnur mál
Stjórn Norðurslóða viðskiptaráðsins