Setjumst niður með Ólafi Jóhann

Miðvikudaginn 2. nóvember kl. 17:00 bjóða Amerísk-íslenska viðskiptaráðið og Arion banki til viðburðar í höfuðstöðvum Arion, Borgartúni 19, þar sem Ragnar Jónasson rithöfundur ræðir við Ólaf Jóhann Ólafssonum um það sem á daga Ólafs hefur drifið undanfarin ár. 

Ólafur Jóhann lét af störfum sem aðstoðarforstjóri Time Warner fyrir nokkru og hefur að mestu lagt áherslu á ritstörf síðan þá. Nýjasta skáldsaga hans, Játning, kemur út þennan sama dag, en nú standa einnig yfir tökur í London á kvikmynd eftir bók Ólafs, Snertingu, sem Baltasar Kormákur leikstýrir. 

Að viðburði loknum verður boðið upp á léttar veitingar og tækifæri gefst til að fá höfundana til að árita bækur.

Við vonumst til að sjá þig!

Amerísk-íslenska viðskiptaráðið

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Hafa samband

bilateral@chamber.is

+354 510 7100