Uppselt er á hið árlega N.Y. steikarkvöld Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins sem haldið verður laugardaginn 10. september.
Venju samkvæmt verður öllu til tjaldað í mat og drykk á Hilton Reykjavík Nordica auk þess sem dagskráin er ekki af verri endanum.
Við hefjum kvöldið kl. 19:00 á fordrykk í boði Ölgerðarinnar áður en gestir setjast og snæða þriggja rétta hátíðarkvöldverð kl. 19:30 að hætti matreiðslumeistara Hilton.
Matseðill kvöldsins
- Nauta carpaccio með klettasalati, piparrót, pikkluðu grænmeti og reyktum Tind.
- Heilsteikt nautalund framreidd með bakaðri kartöflu, broccolini, steiktum sveppum og bérnaise.
- „Sticky toffee“ framreidd með heimalöguðum ís og berjum.
Í ár mætir brakandi ferskur leynigestur auk þess sem Herra Hnetusmjör stígur á stokk og hitar upp dansgólfið fyrir Bandmenn sem loka kvöldinu ásamt Regínu Ósk.
Veislustjórar eru Þuríður Blær & Guðmundur Felixsson.