Health & Wellness London, 5-6 October 2022

Bresk-íslenska viðskiptaráðið, Íslandsstofa og Samtök iðnaðarins standa fyrir heimsóknum, tengslamyndun og fræðslu um sókn á breska markaðinn í samvinnu við sendiráð Íslands í London fyrir "Health & Wellness Sector"

Dagskrá er skipulögð í samstarfi við breska ráðgjafa sem hafa áralanga reynslu af breska smásölumarkaðnum

5. október - B2B viðburður í sendiráði Íslands í London

15:00-16:00
Þátttakendur kynna fyrirtæki sín fyrir innkaupaaðilum og fjárfestum úr bresku viðskiptalífi.

16:00-17:00
Sérsniðnir fundir fyrir þitt fyrirtæki (B2B) sem verða ákveðnir fyrir fram í samráði við þig.

17:00-18:00
Drykkur í boði sendiherra Íslands í London.

6. október - Fræðsla um breska smásölumarkaðinn

09:00-12:00
Stjórnendur og sérfræðingar leiðandi sérverslunar í miðborginni bjóða þátttakendum í heimsókn.

12:00-14:00
Alvogen býður þátttakendum í hádegisverð samhliða því að segja frá sinni sögu og framtíðarsýn í alþjóðlegu umhverfi.

14:00-17:00
Dagskrá í sendiráði Íslands þar sem fram fer kynning á markaðstækifærum. Sölustjórar, dreifingaraðilar og aðrir sem koma að fjárfestingum í „Health & Wellness“ geiranum verða með framsögur. Einnig hafa fyrirtækin tækifæri á að bjóða sjálf aðilum sem þau kunna að vera í samskiptum við til fundar í sendiráðinu.

Dagskráin er fyrir félagsmenn í Bresk-íslenska og er þátttökugjald er 75.000 isk.

Lokafrestur til að skrá þátttöku er f.h. miðvikudaginn 1. september n.k. Allar nánari upplýsingar veitir Sigrún Lilja: sigrun@chamber.is

Hver og einn sér um að bóka sitt flug og hótel eftir hentugleika.

British-Icelandic

Chamber of Commerce

Hús atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Contact

mottaka@vi.is

Managing director:

Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir

+354 510 7100