Morgunfundur – Danska leiðin

Dagsetning: miðvikudagur 18. maí
Tími: kl. 9:00-11:00
Staður: Borgartún 35

Dansk-íslenska viðskiptaráðið efnir til kynningarfundar miðvikudaginn 18. maí um dönsku leiðina varðandi framleiðslu, sölu og markaðssetningu á lífrænum matvörum.

Danmörk var fyrsta landið í heiminum sem innleiddi í lög eftirlit með lífrænum matvörum árið 1987, Ø-merkið. Í dag eru vörur sem bera Ø-merkið mjög virtar og vinsælar meðal danskra neytenda og það vörumerki sem Danir þekkja hvað mest.

Pernille Bundgard frá Organic Denmark segir frá hvernig danska leiðin gerði Danmörk að leiðandi þjóð á lífræna matvörumarkaðnum. Hver aðferðafræðin er að baki dönsku leiðarinnar og hvaða áhrif danska Ø-kynslóðin hefur í dag.