Framkvæmdaáætlun um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða

Opinn fundur um gerð framkvæmdaáætlunar fyrir stefnu Íslands í málefnum norðurslóða. Fundurinn verður haldinn í Háskólanum á Akureyri 31. mars, 8:30-16:00.

Ný stefna Íslands í málefnum norðurslóða var samþykkt með þingsályktun á Alþingi 19. maí 2021. Í stefnunni er kveðið á um að utanríkisráðherra móti áætlun um framkvæmd norðurslóðastefnunnar í samráði við aðra hlutaðeigandi ráðherra og er fundurinn liður í því ferli. Í framhaldi af fundinum gefst áhugasömum jafnframt kostur á að taka þátt í starfi þemahópa sem munu fjalla um afmarkaða liði stefnunnar og skila tillögum til utanríkisráðuneytis Íslands. Þátttaka um fjarfund verður möguleg.

Dagskrá:

08:30 – 09:00 Skráning og morgunkaffi

09:00 – 09:10 Opnunarávarp: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra

09:10 – 09:20 Ávarp: Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri og formaður Arctic Mayors‘ Forum

09:20 – 09:35 Pétur Ásgeirsson sendiherra Íslands í málefnum norðurslóða: Kynning á stefnu Íslands í málefnum norðurslóða

09:35 – 09:50 Líneik Anna Sævarsdóttir, formaður Íslandsdeildar þingmannaráðstefnu norðurslóða: Starf Íslandsdeildarinnar og þingmannaráðstefnunnar

09:50 – 10:05 Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands: Kynning á verkefninu, verkáætlun, tímaáætlun og þemahópum

10:05 – 10:30 Kaffihlé

10:30 – 12:00 Pallborð: umræður og kynning á þemahópum um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða.
A. Alþjóðlegt samstarf og skuldbindingar; B. Loftslagsbreytingar, vistkerfi og mengunarvarnir; C. Samfélag og innviðir; D. Uppbygging og framlag til málefna norðurslóða; E. Leit og björgun, fjarskipti, björgunarklasi

12:00 – 13:00 Hádegisverður

13:00 – 13:20 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti (tbc)

13:20 – 13:35 Heiðar Guðjónsson, formaður Norðurslóðaviðskiptaráðs Íslands: Norðurslóðaviðskiptaráðið

13:35 – 14:50 Hugarflug um aðgerðir og forgangsröðun

14:50 – 15:20 Kaffihlé

15:20 – 15:30 Samantekt, Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands

15:30 – 16:00 Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Hringborðs norðurslóða, fv. forseti Íslands: Ísland á norðurslóðum, framtíðarsýn

Fundarstjóri: Sigríður Huld Blöndal, sérfræðingur, utanríkisráðuneyti

Spurningum má vísa til Sveinbjargar Smáradóttur hjá Norðurslóðaneti Íslands: sveinbjorgs@arcticiceland.is

Norðurslóðaviðskiptaráðið

Hús atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Hafa samband

bilateral@chamber.is

+354 510 7100