Heimsókn frá Kanaríeyjum

Sendinefnd frá Kanaríeyjum er nú stödd á Íslandi á vegum Spánsk–íslenska viðskiptaráðsins. Sendinefndin samanstendur af meðlimum viðskiptaráðs Kanaríeyja, ráðherrum úr heimastjórn eyjanna og forsvarsfólki ýmissa fyrirtækja sem hafa höfuðstöðvar á Kanaríeyjum.

Tilgangur komu sendinefndarinnar er að fræðast um stafræna þróun og viðskipti íslenskra fyrirtækja auk þess að efla samstarfs á milli landanna. Í tilefni komu sendinefndarinnar bauð Spánsk-íslenska viðskiptaráðið til fundar í Húsi atvinnulífsins þann 6. september 2021 þar sem þau Konráð Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóri og hagfræðingur Viðskiptaráðs, Ágúst Elvar Bjarnason, verkefnastjóri hjá SAF, Andri Kristjánsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi Trappa og Kara Connect, héldu erindi.

Í lok fundarins skrifuðu Ari Fenger, formaður Viðskiptaráðs Íslands, Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri ráðsins, Santiago de Armas, varaformaður Viðskiptaráðs Kanaríeyja og Luis Padrón, framkvæmdastjóri sama ráðs, undir viljayfirlýsingu um samstarf ráðanna tveggja.

Viðskiptaráð Íslands og Spánsk-íslenska viðskiptaráðið þakka sendinefndinni kærlega fyrir komuna og óska gestunum góðrar og árangursríkrar dvalar á Íslandi. 

Myndir frá fundinum má finna á Facebook síðu ráðsins.

Spánsk-íslenska viðskiptaráðið

Hús atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Hafa samband

bilateral@chamber.is

+354 510 7100