Adidas og sjálfbær stefnumörkun

Davis Quass hefur í átta ár leitt nýsköpunardrifna viðskiptaþróun hjá Adidas þar sem hann hefur sjálfbærni að leiðarljósi.

Starf hans er fólgið í því að setja fram vegvísi sjálfbærrar stefnumörkunar fyrir Adidas vörumerkið og setja vistvænar vörður í nýsköpunarferli fyrirtækisins sem spannar allt frá hugmynd að vörulínu á neytendamarkaði. 

Þá ber hann ábyrgð á hringrásarferli Adidas sem nær frá hönnun og framleiðslu til enda líftíma hverrar vöru.  

Adidas er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki í íþróttavörum og velti € 23,6 milljörðum árið 2019.  Hjá fyrirtækinu starfa yfir 60 þúsund manns um heim allan.  Síðustu fimm ár hefur sjálfbærni verið hornsteinn í stefnumörkum fyrirtækisins, en fyrirtækið hefur skuldbundið sig til að nota 100% endurunnið pólýester árið 2024 fyrir yfir milljarð vöruafbrigða sem framleidd eru árlega undir vörumerkinu Adidas.  

Fundarstjóri: Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°N.

  • HVENÆR:
    25. mars, kl. 9:00-10:00
     
  • HVAR:
    Streymi.
     
  • TUNGUMÁL:
    Enska.
     

Skráningu á fund þarf að vera lokið  fyrir kl.16:00 þann 24. mars.

Millilandaráðin

Millilandaráðin & The Bilateral Chambers

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

105 Reykjavík

Hafa samband / Contact

bilateral@chamber.is

+354 510 7100