Fyrirlestur með Peter Strub framkvæmdastjóra Studiousus, sem er leiðandi ferðaheildsali í skipulögðum fræðslu- og menningarferðum í Evrópu þann 27. janúar kl. 9:00 í opnu streymi.
Studiousus er fremst í flokki í sjálfbærri ferðaþjónustu í heiminum og hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir gæði og sjálfbærni. Fyrirtækið selur ferðir til um 120 landa, m.a. Íslands. Peter deilir sýn sinni með félagsmönnum Þýsk-íslenska viðskiptaráðsins á ferðaþjónustu framtíðarinnar og þeim breytingum sem kunna að verða á ferðatilhögum ferðamanna eftir Covid.
- Hvar:
Streymi
- Hvenær:
27. janúar n.k., kl. 9:00
- Fundurinn fer fram á ensku
Skráning á fundinn hér