Aukaaðalfundur – fundarboð

Kæru félagar.

Stjórn Ítalsk-íslenska viðskiptaráðsins boðar til aukaaðalfundar þann 17. desember næstkomandi kl. 12:00. Fundurinn verður haldinn á TEAMS sökum óviðráðanlegra aðstæðna í þjóðfélaginu.

Dagskrá aukaaðalfundar

  1. Sameining kennitölu Ítalsk-íslenska viðskiptaráðsins við kennitölu Alþjóða viðskiptaráðanna.
  2. Breytingar á samþykktum Ítalsk-íslenska viðskiptaráðsins
  3. Önnur mál

Vegna nálægðar fundarins við hátíðisdaga er gerður fyrirvari við fundarboðið en vikið er frá 2 vikna fyrirvara fundarboðsins sem nemur 1 degi. Slíkt telst samþykkt ef ekki er gerð athugasemd við það af hálfu félaga, fyrir fundardag.

Drög að breyttum samþykktum:

Samþykktir ítalsk-íslenska viðskiptaráðsins

I. NAFN

1. grein

Nafn ráðsins er Ítalsk-íslenska viðskiptaráðið, hér eftir nefnt ráðið.

Heimili og varnarþing ráðsins er í Reykjavík og um réttarstöðu þess fer að íslenskum lögum.

II. MARKMIÐ OG STARFSEMI

2. grein

Markmið ráðsins er að efla og viðhalda viðskiptatengslum milli Ítalíu og Íslands, ásamt því að efla samvinnu og viðskipti milli fyrritækja beggja landa. Ennfremur að stuðla að eflingu tengla á sviðum menntunar, menningar, viðskipta og stjórnmála.

3. grein

Í samræmi við markmið ráðsins skal það m.a. vinna að eftirfarandi:

  1. Skipuleggja fundi og ráðstefnur er varða almenn málefni milli landanna tveggja.
  2. Skipuleggja heimsóknir aðila í viðskiptalífinu til beggja landa.
  3. Standa vörð um viðskiptatengda hagsmuni félaga sinna gagnvart ítölskum og íslenskum yfirvöldum.
  4. Veita beina þjónustu samkvæmt ákvörðun stjórnar, þ.e. veita upplýsingar um viðskiptatengiliði, aðstoða við að koma á viðskiptatengslum á milli fyrirtækja og dreifa upplýsingum er varða viðskipti í löndunum tveimur.

III. FÉLAGAR

4. grein

Eftirtaldir aðilar geta verið félagsmenn:

Einstaklingar með íslenskan eða ítalskan ríkisborgararétt eða einstaklingar sem reka atvinnustarfsemi í öðru hvoru ríkjanna, sem og samtök þeirra. Heiðursfélagar sem stjórn býður aðild skv. samþykktum þessum.

5. grein

Sækja þarf skriflega um aðild að félaginu.  Stjórn félagsins tekur ákvörðun um félagsaðild.

6. grein

Stjórn félagsins getur lagt það til við aðalfund að tiltekinn einstaklingur (eða einstaklingar) sem stuðlað hefur sérstaklega að eflingu ráðsins, markmiða þess eða tengslum á milli landanna verði gerður að heiðursfélaga þess.  Slík tillaga þarf að hljóta samþykki 2/3 hluta atkvæða viðstaddra.  Heiðursfélaga skal heimilt að sitja aðalfundi félagsins með málfrelsi og tillögurétt. 

 7. grein

Úrsögn úr félaginu þarf að vera skrifleg og tekur gildi frá og með næstu áramótum eftir að hún berst.  Úrsögn breytir engu um skyldu til greiðslu árgjalds á yfirstandandi reikningsári.

 8. grein

Stjórn félagsins getur með 2/3 atkvæða ákveðið að vísa félaga úr ráðinu í sérstökum tilvikum, svo sem ef um alvarlegt brot er að ræða gegn hagsmunum eða tilgangi þess, brot á samþykktum þess eða alvarlegt brot á landslögum.

IV. AÐALFUNDIR

9. grein

Aðalfund ber að halda eigi síðar en í 1. október á hverju ári.  Boðað skal til aðalfundar á tryggilegan og skriflegan hátt með minnst 2 vikna fyrirvara. Boðun með tölvupósti og/eða með tilkynningu á vefsíðu ráðsins er talin fullnægjandi.

10. grein

Allir félagar sem greitt hafa árgjald eiga rétt á því að mæta á fundi ráðsins, bera fram tillögur og greiða atkvæði. 

Heiðursfélagar hafa sama rétt og aðrir félagar á fundum ráðsins.

11. grein

Formaður stýrir aðalfundi eða tilnefnir sérstakan fundarstjóra.  Fundarstjóri tilnefnir fundarritara.

 Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir: 

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Kosning formanns
  3. Kosning stjórnarmanna
  4. Yfirferð yfir fjárhag ársins í samræmi við innheimt árgjöld
  5. Kynning á fjárhagsáætlun næsta rekstrarárs og ákvörðun árgjalda
  6. Breytingar á samþykktum
  7. Önnur mál

12. grein

Lögmætir félagsfundir ráðsins hafa æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda. Til félagsfundar skal stjórnin boða með minnst sjö virkra daga fyrirvara. Heimilt er að boða til félagsfunda með rafrænum hætti.

V. STJÓRNIN

13. grein

Stjórn ráðsins samanstendur af 11 einstaklingum sem kosnir skulu á aðalfundi til tveggja ára í senn. Stjórnarsetan er persónubundin. Stefna skal að því að hafa eins jafnt hlutfall ítlaskra og íslenska stjórnarmanna á hverjum tíma. Aðeins einn fulltrúi hvers aðildarfélaga ráðsins má sitja í stjórn.

Formaður skal kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu lagi. Séu fleiri í framboði til stjórnar en sem nemur þeim fjölda stjórnarsæta sem kosið skal um skal kosning fara fram skriflega og í einu lagi. Hver atkvæðisbær aðalfundargestur má greiða jafnmörgum frambjóðendum atkvæði og nemur fjölda stjórnarsæta sem kosið skal um, en heimilt er að greiða færri frambjóðendum atkvæði. Afl atkvæða ræður úrslitum en falli atkvæði jafnt skal hlutkesti ráða.

Félagar sem hyggjast bjóða sig fram til stjórnarsetu í ráðinu skulu tilkynna formanni eða framkvæmdastjóra það a.m.k. 1 viku fyrir auglýstan aðalfund.

VI. FJÁRMÁL

14. grein

Reikningsár félagsins er almanaksárið.

VII. BREYTINGAR Á SAMÞYKKTUM

15. grein

Tillögur til breytinga á samþykktum skulu berast stjórn í tæka tíð þannig að þær megi kynna í fundarboði aðalfundar.  Ákvörðun um breytingar skal taka á aðalfundi og til að tillaga nái fram að ganga þurfa a.m.k. 2/3 fundarmanna að samþykkja hana.

16. grein
Tillögur um slit félagsins skulu sæta sömu meðferð og breytingar á samþykktum. 

Verði ákvörðun um félagsslit samþykkt skal hreinni eign ráðstafað jafnt til allra félagsmanna.

Reykjavík, desember 2020

Stjórn

Millilandaráðin

Millilandaráðin & The Bilateral Chambers

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35

105 Reykjavík

Hafa samband / Contact

bilateral@chamber.is

+354 510 7100