Aðalfundur 2020

Rússnesk-íslenska viðskiptaráðið boðar til aðalfundar föstudaginn 29. maí n.k. kl. 12:00 í Borgartúni 35, 1. hæð.

Dagskrá aðalfundar verður í samræmi við 11. gr. samþykkta félagsins sem hér segir:

1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningar.
3. Kosning formanns.
4. Kosning stjórnarmanna.
5. Kosning endurskoðanda.
6. Kynning á fjárhagsáætlun næsta rekstrarárs og ákvörðun árgjalda.
7. Breytingar á samþykktum.
8. Önnur mál.