Fransk-íslenska viðskiptaráðið boðar til aðalfundar fimmtudaginn 14. maí 2020 n.k. í Borgartúni 35, kl. 11:00-12:00 GMT (13:00 – 14:00 að frönskum tíma).
Fundurinn verður haldinn í gegnum Microsoft Teams fjarfundarbúnað eins og nánar kemur fram í fundarboði.
Dagskrá aðalfundar verður í samræmi við 7. gr. samþykkta félagsins sem hér segir:
- Fundarsetning
- Kosning fundarstjóra
- Kosning ritara
- Umfjöllun um skýrslu stjórnar
- Ársreikningar ráðsins lagðir fram til samþykktar
- Lagabreytingar
- Stjórnarkjör
- Kosning eins endurskoðanda
- Félagsgjöld
Vinsamlegast skráið þátttöku hér.
Fyrir hönd stjórnar Fransk-íslenska viðskiptaráðsins,
Baldvin Björn Haraldsson