Málefni Frakklands er varða Brexit

Fransk-íslenska viðskiptaráðið í samstarfi við sendiráð Íslands í París, efndi til málþings í sendiherrabústaðnum mánudaginn 7. október um þær áskoranir sem Frakkland stendur frammi fyrir í málefnum er varða Brexit. Aðalgestur málþingsins, Marie Lebec, þingmaður LREM, lýsti í umfjöllun sinni þeim tækifærum sem gætu opnast fyrir íslensk fyrirtæki á frönskum markaði. Meðal þátttakenda á málþinginu voru félagar í stjórn Samtaka iðnaðarins sem á síðustu dögum hafa kynnt sér franska markaðinn. Í lok málþingsins bauð sendiherra Íslands gestum upp á léttar veitingar.

Fransk-íslenska viðskiptaráðið

Hús atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Hafa samband

bilateral@chamber.is

+354 510 7100