Áhugavert og upplýsandi erindi hagfræðingsins Svein Harald Øygard á síðdegisfundi Norsk-íslenska viðskiptaráðsins sem fram fór 15. maí í tilefni af útkomu bókar hans Á vígvelli hrunsins.
Í kjölfarið á bankahruninu var norski hagfræðingurinn Svein Harald Øygard tímabundið settur sem bankastjóri Seðlabanka Íslands með lögum sem samþykkt voru 26. febrúar 2009. Hann er einn fárra „útlendinga“ sem leitt hefur fjármálastofnun í öðru landi og í stöðu sinni sem seðlabankastjóri var hann staddur á miðjum vígvelli íslenska og alþjóðlega fjármálahrunsins.
Hægt er að sjá myndir frá fundinum hér.