BREXIT – Staða mála og áhrif á íslensk fyrirtæki?

Bresk-íslenska viðskiptaráðið og Samtök verslunar og þjónustu, í samvinnu við utanríkisráðuneytið  
og breska sendiráðið efna til fundar um stöðuna í Brexit málum.

Útganga Bretlands úr Evrópusambandinu nálgast óðum og enn er mikil óvissa um það hvernig útgöngu þeirra verður háttað. Nást samningar fyrir 29. mars n.k. eða mun Bretland fara út án samnings? Hver verða áhrifin á viðskiptahagsmuni Íslands?uneytið og breska sendiráðið efna til fundar um stöðuna í Brexit málum n.k. mánudag 4. mars kl. 8:30 á Grand Hótel - Háteig. 

Reynt verður að varpa eins skýru ljósi og hægt er á þessi mál á fundinum.

  • Ávarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra;
  • Sendiherra Bretlands á Íslandi, Michael Nevin, fjallar um málið frá sjónarhorni breskra stjórnvalda;
  • Jóhanna Jónsdóttir, verkefnastjóri Brexitmála hjá utanríkisráðuneytinu, fjallar um helstu álitaefni sem uppi eru og þörf er að fá svör við.

Sérfræðingar stjórnsýslunnar í Brexit málum munu síðan sitja fyrir svörum í panel að framsöguerindum loknum.

Miðasala fer fram hjá TIX og þurfa félagsmenn að setja inn kóðann BRIS. Vinsamlega athugið að aðeins er hægt að kaupa einn miða í einu þegar kóði félagsmanna er nýttur.

Almennt verð 4.500 kr.
Fyrir félagsmenn 3.900 kr. 
Morgunverður innifalinn.

Hægt er að kaupa miða hér.

Bresk-íslenska viðskiptaráðið

Hús atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Hafa samband

bilateral@chamber.is

+354 510 7100