Ársfundur Bresk-íslenska viðskiptaráðsins ber yfirskriftina BREXIT og fer fram á Grand Hótel 25. maí n.k., kl. 12:00.
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra opnar fundinn og fjallar almennt um stöðu BREXIT.
Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Bretlandi greinir frá hlutverki sendiráðsins í samningarviðræðunum.
Pétur Stefánsson, viðskiptafulltrúi í breska sendiráðinu fjallar um BREXIT frá sjónarhóli Breta.
Verð 3.900 kr.
Innifalið er Fiskur dagsins, te/kaffi
Vinsamlega skráði þátttöku til að hægt sé að áætla stærð salar og veitingar á fundinn
Fyrir fundinn eða kl. 11:00 fer fram Aðalfundur Bresk-íslenska viðskiptaráðsins og er dagskrá fundarins skv. samþykktum félagsins.
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur
3. Kosning formanns og fjögurra stjórnarmeðlima
4. Kosning endurskoðanda
5. Kynning á fjárhgasáætlun næsta rekstrarárs og ákvörðun árgjalda fyrir 1) einstaklinga, (2) lítil fyrirtæki og 3) stór fyrirtæki.
6. Breytingar á samþykktum
7. Önnur mál
Fyrir fundinum liggur breytingartillaga á samþykktum félagsins.
Stjórn