Franska kvikmyndahátíðin 2018

Franska sendiráðið og Alliance Française í Reykjavík, í samvinnu við Senu, völdu tíu myndir á hátíðina. Þar er boðið upp á grín, drama og hroll, ásamt heimilda- og teiknimyndum.

Sýnishorn af því sem þar gefur að líta: 
- Svona er lífið er opnunarmyndin, í leikstjórn þeirra sem gerðu Intouchables, Erics Toledanos og Oliviers Nakaches;
- Happy end, nýja myndin eftir Michael Haneke;
- Victoria eftir Justine Triet með Virginie Efira ;
- Lífs eða liðinn, eftir Katell Quillévéré, byggð á skáldsögu Maylis de Kerangal. Á einni sýningu myndarinnar verður rætt um líffæragjafir og rennur ágóði af sýningunni til þeirra mála; 
- Efst á heimi, teiknimynd fyrir alla fjölskylduna; 
- Hvítu riddararnir eftir Joachim Lafosse með Vincent Lindon; 
- Myrkviði, hrollvekja eftir Gilles Marchand.

Í samstarfi við Sendiráð Kanada á Íslandi fengum við myndina Iqaluit á hátíðina.

Og að síðustu verða tvær sérstakar kvöldsýningar, önnur helguð dansi, með myndinni Polina og heimildamyndinni Endurfæðingin. Hin verður á annarri verðlaunahátíð Sólveigar Anspach, þar sem ungum kvenleikstjóra verða veitt verðlaun og þar gefst okkur færi á að kynnast Alice Guy, fyrsta kvenleikstjóra í sögu kvikmyndanna í heimildamynd Emmanuelle Gaume!

Til að fylgjast með öllu því sem gerist á kvikmyndahátíðinni heimsækið okkur þá á Facebook-síðu hennar 

Fransk-íslenska viðskiptaráðið

Hús atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Hafa samband

bilateral@chamber.is

+354 510 7100