Franska sendiráðið og Alliance Française í Reykjavík, í samvinnu við Senu, völdu tíu myndir á hátíðina. Þar er boðið upp á grín, drama og hroll, ásamt heimilda- og teiknimyndum.
Sýnishorn af því sem þar gefur að líta:
Svona er lífið er opnunarmyndin, í leikstjórn þeirra sem gerðu Intouchables, Erics Toledanos og Oliviers Nakaches;
Happy end, nýja myndin eftir Michael Haneke;
Victoria eftir Justine Triet með Virginie Efira ;
Lífs eða liðinn, eftir Katell Quillévéré, byggð á skáldsögu Maylis de Kerangal. Á einni sýningu myndarinnar verður rætt um líffæragjafir og rennur ágóði af sýningunni til þeirra mála;
Efst á heimi, teiknimynd fyrir alla fjölskylduna;
Hvítu riddararnir eftir Joachim Lafosse með Vincent Lindon;
Myrkviði, hrollvekja eftir Gilles Marchand.
Í samstarfi við Sendiráð Kanada á Íslandi fengum við myndina Iqaluit á hátíðina.
Og að síðustu verða tvær sérstakar kvöldsýningar, önnur helguð dansi, með myndinni Polina og heimildamyndinni Endurfæðingin. Hin verður á annarri verðlaunahátíð Sólveigar Anspach, þar sem ungum kvenleikstjóra verða veitt verðlaun og þar gefst okkur færi á að kynnast Alice Guy, fyrsta kvenleikstjóra í sögu kvikmyndanna í heimildamynd Emmanuelle Gaume!
Til að fylgjast með öllu því sem gerist á kvikmyndahátíðinni heimsækið okkur þá á Facebook-síðu hennar