Nordic Innovation House í New York

FRÁBÆRT TÆKIFÆRI FYRIR FYRIRTÆKI Í SKAPANDI GREINUM 

Íslensk sprotafyrirtæki í skapandi greinum eiga kost á að taka þátt í alþjóðlegum hraðli Nordic Innovation House í New York. Síðasti dagur til að sækja um er 20. janúar 2018.
  • Námskeið fyrir sprota í skapandi greinum sem haldið er að hluta í Noregi og New York – og stendur yfir á alls 8 mánaða tímabil
  • Þriggja mánaða aðstaða í fyrirtækjasetri Nordic Innovation House í New York á tímabilinu
  • Aðstoð ráðgjafa, sérfræðinga og mentora

 Á Norðurlöndum er hefð fyrir því að skilgreina skapandi greinar sem eftirtaldar:

Arkitektúr, tölvuleikir, hönnun, kvikmyndagerð, bókmenntir, tónlist, auglýsingagerð, prentmiðlar, sjónvarp og útvarp, myndlist og sviðslistir.

Áhersla er lögð á að efla þátttakendur í hraðlinum í sölu, markaðsmálum, uppbyggingu mörkunar og ekki síst að koma sér á framfæri í harðri samkeppni í New York með aðstoð ráðgjafa, sérfræðinga og mentora.

Hraðallinn hentar frumkvöðlafyrirtækjum í skapandi greinum sem eru með;

  • … tilbúna vöru eða þjónustu fyrir markað í Bandaríkjunum eða sýnishorn til reiðu sem á erindi þangað
  • … metnað fyrir að vaxa alþjóðlega
  • … öflugt frumkvöðlateymi
  • ...löngun til að læra og auka getu sína til að þroska viðskiptahugmyndina

Þátttökugjald í hraðlinum er 2.500 USD – íslensk yfirvöld munu styrkja fyrirtæki héðan um 1.500 USD. Þáttakendur bera sjálfir kostnað af ferðalögum og upphaldi.

Umsóknarfrestur er til           20. janúar 2018      

Upphafsfundur í Osló             22. – 23. mars 2018

Námskeið                             21. maí – 1. júní 2018

Nánari upplýsingar veita Andri Marteinsson hjá Íslandsstofu (andri@islandsstofa.is) og Berglind Hallgrímsdóttir hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands  (berglind@nmi.is)

Styrkur í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli

Í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands styrkir Icelandic-American Chamber of Commerce fyrirtæki frá Íslandi með framlagi úr Fullveldissjóði IACC. Umsóknir um styrkinn þurfa að berast í tölvupósti til aðalræðismanns Íslands í New York:

Hlynur Guðjónsson
iacc@mfa.is
Sími 545 7766

Hér er sótt um hjá Nordic Innovation House - New York. Munið að haka við Enterpreneurial Marketing Program for Nordic Creative Industries (CCI) í skjalinu áður en usmókn er staðfest.

Amerísk-íslenska viðskiptaráðið

Húsi atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Hafa samband

bilateral@chamber.is

+354 510 7100