Umsókn í Rússnesk-íslenska viðskiptaráðið
Til hvers að gerast félagi í RÚÍS?

Til að tryggja og efla tengsl við þá sem eiga í viðskiptum við Rússland eða hafa hug á því. Markmið ráðsins er að efla og viðhalda viðskiptatengslum milli Rússlands og Íslands, ásamt því að efla tengsl á sviðum menntunar, menningar og stjórnmála.

Fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir, lítil eða stór, geta gerst félagar í RÚÍS.  Ráðið er vettvangur sem nýtist til að vinna að hvers konar framförum, að bættu starfsumhverfi og betri tengslum. Öflugur hópur félaga eflir og styrkir vinnu ráðsins með stjórnvöldum og stofnunum, þínu fyrirtæki til framdráttar. Með aðild getur þú haft áhrif á verkefni og starfsemi ráðsins.

Einstaklingar:  10.000 ISK
Fyrirtæki með undir 50 starfsmenn:  50.000 ISK
Fyrirtæki með yfir 50 starfsmenn:  75.000 ISK
   

Gerast félagi