Um okkur.

Viðskiptaráðið var stofnað þann 8. mars 2011. Tilgangur félagsins er að efla viðskipti og efnahagssamvinnu landanna. Félagið mun leitast við að starfa með þeim félögum á Íslandi og í Noregi, sem vinna að hliðstæðum verkefnum. Til að stuðla að þessum markmiðum mun félagið, eftir efnum og ástæðum, standa fyrir fræðslufundum og ráðstefnum og veita upplýsingar um atvinnulíf, fjárfestingarmöguleika og viðskiptamöguleika í Noregi og á Íslandi.

Markmið

Norsk-íslenska viðskiptaráðið ("NIH") hefur það að markmiði að efla og viðhalda viðskiptatengslum milli Noregs og Íslands. NIH er vettvangur fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga til að stækka og styrkja tenglanet sitt. NIH hefur það einnig að markmiði að vera vettvangur upplýsingamiðlunar milli Noregs og Íslands.

Helstu verkefni 

  • Norsk-íslenska viðskiptaráðið stendur fyrir fundum og ráðstefnum um málefni sem tengjast viðskiptum á milli Íslands og Noregs.
  • Starfsemi NIH beinist að því að efla tengsl og auka viðskipti milli landanna. Meðal annars aðstoðar viðskiptaráðið við uppsetningu funda og skipulagningu heimsókna milli landanna.
  • NIH hefur að markmiði að vaka yfir orðspori Íslands og Noregs í hvoru landi fyrir sig. 
  • Norsk-íslenska viðskiptaráðið leggur áherslu á gott samstarf við sendiráð Íslands í Osló og sendiráð Noregs á Íslandi.


Stjórn ráðsins.

Formaður:

Steinunn K. Þórðardóttir, Acton Capital

Stjórnarmeðlimir á Íslandi:

Grétar Elías Finnsson, Laxar ehf.

Agnes Árnadóttir, Brim Explorer

Valgeir Magnússon, Pipar/TBWA

Margrét Gunnarsdóttir, Arntzen and Besche

Laufey Fríða Guðmundsdóttir, BL




Stjórnarmeðlimir í Noregi:

Bjørn Tore Larsen, Icelandair

Guðmundur Einarsson, Viljeve AS

Lára Konráðsdóttir, Eimskip

Norsk-íslenska viðskiptaráðið

Hús atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Hafa samband

bilateral@chamber.is

+354 510 7100